Flug

Cassano d’Adda er 30 km frá Milano og því er best að fljúga til þeirra flugvalla sem eru við Milano. Milano Linate og Bergamo flugvellir eru þeir sem eru næstir Cassano en öll bein flug frá Íslandi fara til Milano Malpensa sem er fyrir norðan Milano. Ef einhverjir eru að taka tengiflug eða fljúga beint frá öðru landi en Íslandi mæli ég með að finna flug til Linate eða Bergamo ef ætlunin er að fara beint til Cassano eftir flugið.

Lestir

Það er hægt að taka lest frá Milano Malpensa til Cassano d’Adda en þá þarf að stoppa einu sinni til tvisvar á leiðinni til að skipta um lest.

Frá lestarstöðinni í Cassano er hægt að taka strætó til að komast inn í bæinn. Ef einhverjir ætla sér í svoleiðis ævintýri þá er best að hafa beint samband við Ragnheiði til að fá leiðbeiningar

Bílaleigubílar, strætó og leigubílar

Það er án efa lang þægilegast að vera með bílaleigubíl þegar komið er til Cassano d’Adda. Byggðin er nokkuð dreifð og því getur tekið tíma að ganga á milli staða. Það er einnig gaman að keyra um svæðið og heimsækja nærliggjandi bæjarfélög. Það er einn strætó í bænum en við þekkjum ekki nógu vel hvort hann sé áreiðanlegur eða ekki. Það er einnig eflaust mögulegt að fá leigubíl í bænum og með stuttri leit með hjálp chatgpt fundum við 2-3 hlekki á leigubílaþjónustu á svæðinu.

Gisting í bænum

Il Castello Visconteo er viðburðahús en einnig hótel sem er opið fyrir viðburðagesti. Gestir okkar geta því bókað 1-2 nætur á hótelinu í gegnum okkur. Standard herbergi kosta 150 EUR en svítur 190 EUR. Nokkrar svítur eru lausar en líklega eru öll standard herbergin uppbókuð (gæti verið að einhverjir sameini herbergi sem eru í standard og þá gæti losnað).

Það eru einnig nokkrir valmöguleikar um heimagistingu í Cassano sem má finna bæði á booking.com og á Airbnb. Í bænum eru svo tvö hótel sem eru nálægt kastalanum, Park Hotel Cassano og Hotel Julia. Park Hotel er nýrra hótel og virkar mjög snyrtilegt. Þó að Hotel Julia sé eflaust ekki slæmur kostur þá höfum við heyrt að hótelið sé svolítið farið að drabbast niður. En stór kostur við Hotel Juliu er mikil nálægð við kastalann á meðan Park Hotel Cassano er örlítið lengra í burtu (ca. 20 mínútna ganga).

Hvað er hægt að gera í bænum og í nágrenninu?

Það er ýmislegt að skoða í Cassano d’Adda. Það er nýbúið að breyta miðbænum til að reyna að draga úr umferð bíla og breytingarnar eru mjög til bóta. Í miðbænum er hægt að ganga meðfram kastalanum í átt að ánni Adda. Þar er brú sem liggur að eyju í miðri Adda sem heitir Isola (eyja) Borromeo. Þar er garður, Parco Pubblico Isola Borromeo, og einnig veitingastaður sem er allavega nógu góður til að setjast niður til að fá sér smá snarl og jafnvel einn Aperol Spritz.

Það er þó skemmtilegri pöbb hinu megin við ánna, við hliðina á kastalanum, sem heitir Dopolavoro. Sem er einmitt staður sem Andrea og vinir hans stunduðu mikið á yngri árum og hittast þar oft enn í aperitivo til að ræða mál málanna hverju sinni. Dopolavoro þýðir eftir vinnu og þegar húsið var reist árið 1939 var þetta samkomuhús fyrir fólk sem vann í textílverksmiðju sem var við hliðina á Dopolavoro. Öll starfsemi í verksmiðjunni var lögð niður árið 1995 en verksmiðjuhúsið er þarna ennþá.

Það eru fleiri falleg svæði í kringum Adda ánna sem gaman er að skoða. Lengra frá miðbænum, í hluta af bænum sem heitir Groppello d’Adda (þar búa foreldrar Andrea), er gamalt vatnsveituhjól, Rudùn, í Naviglio sem var hannað af Leonardo da Vinco. Frá Rudùn er hægt að ganga meðfram Naviglio en einnig niður að skóglendi við Adda, yfir ánna og í næsta bæjarfélag sem heitir Fara Gera d’Adda.

Ef maður er á bíl er upplagt að skella sér í dagsferð eitthvert í nágrenninu. Það tekur rúma klukkustund að keyra til frægu vatnanna á N-Ítalíu, þ.e. Lago di Como, Lago Maggiore og Lago di Garda. Einnig er gaman að skella sér í dagsferð til Bergamo, sem er mjög fallegur bær í ca 30 mín keyrslufjarlægð frá Cassano. Þar er sérstaklega gaman að heimsækja gamla miðbæinn, città alta, sem er einstaklega fallegur með fullt af skemmtilegum búðum og góðum veitingastöðum.

Matur

Eins og í flestum ítölskum bæjum og borgum er nóg af góðum veitingastöðum á svæðinu. Það er örugglega ekki mikið um enskukunnáttu á veitingastöðunum en það má redda sér með google translate! Hér er listi yfir nokkra góða sem við þekkjum (svo eru margir fleiri sem við höfum ekki prófað):

Í Cassano:

Vecchio Fiume: Klassískur ítalskur staður, hægt að fá ágætis pizzur.

Il Fagus: Mjög góður veitingastaður á fallegu svæði aðeins utan alfaraleiðar.

Frulleria cafè: Góð panini (samlokur/langlokur)

Við bætum við meiri upplýsingum á þessa síðu þegar okkur dettur eitthvað sniðugt í hug!