
Cassano
Cassano d’Adda er um 20.000 manna bær ca 30 km. fyrir austan Milano. Nafnið á bænum dregur nafn sitt af ánni Adda sem bærinn liggur við.
Náttúra og umhverfi
Bærinn er hluti af þjóðgarði, Parco Adda Nord. Svæðið í kringum Adda ánna er mjög fallegt og margir sækja þangað til að stunda ýmis konar útivist, svo sem göngur, hlaup eða hjólreiðar.
Manngerði skurðurinn Naviglio rennur úr Adda og liggur til Milano. Meðfram skurðinum eru hjóla- og göngustígar sem svo það er hægt að hjóla eða ganga alla leið til Milano.


Saga
Cassano d’Adda á sér langa sögu en byggð hefur verið á svæðinu frá því á tímum Rómaveldis. Bærinn var sögusvið ýmissa átaka í fortíðinni og þau frægustu eru Bardaginn um Cassano árið 1705.
Naviglio Martesana skurðurinn, sem er áveitu- og skipaflutningakerfi, er eitt frægasta kennileiti Cassano og nágrennis. Naviglio skurðurinn var grafinn frá ca 1460 – 1496 og var mjög mikilvægur fyrir svæðið og var notaður til að flytja ýmis hráefni til og frá Milano, svo sem korn, timbur og marmara.
Leonardo da Vinci, sem var frumkvöðull á sviði vatnsaflsfræði, kom síðar meira að endurbótum á Naviglio og þegar hann var á svæðinu dvaldi hann í Il Castello Visconteo.
Bærinn og mannlífið
Cassano d’Adda er fallegur, rólegur og mjög fjölskylduvænn bær. Eins og í flestum bæjum á Norður-Ítalíu eru bæjarhátíðir reglulega haldnar í bænum sem standa yfir í nokkra daga eða vikur. Áherslur hverrar hátíðar eru ólíkar en flestar snúast annað hvort um tónlist, mat eða hvoru tveggja.
Í Cassano d’Adda er gamall miðbær og kastalinn, Il Castello Visconteo, er eitt helsta kennileiti miðbæjarins.
